Beint í meginmál

Fyrirtækið

Stofnað 22. janúar 1946

Ræktunarsamband Flóa & Skeiða ehf telst í dag eitt elsta verktakafyrirtæki á landinu.

Fyrirtækið var upphaflega sett á legg sem samvinnufélag þann 22. janúar árið 1946 og telst því í dag vera eitt elsta verktakafyrirtæki á landinu. Að stofnuninni komu bændur í fimm hreppum á því svæði sem í dag telst til Flóa og Skeiða, en hér var nánar tiltekið um að ræða eins konar samruna búnaðarfélaga sveitanna undir merki eins ræktunarsambands.

Af þessu má ætla að samvinnuhugsjónin hafi verið helsti drifkraftur sambandsins frá upphafi.

Félagið var lengi einn öflugasti jarðvinnuverktaki á heimasvæði sínu og byggði upp öfluga bordeild. Verkefnin sem félagið hefur komið að eru fjölmörg og stór.

Árin 2008–2014 voru félaginu þung en í kjölfar efnahagshruns á landinu breyttist staðan á einni nóttu. Á árinu 2014 lauk allsherjar endurskipulagningu á rekstrinum. Jarðvinnudeildin var seld frá og starfar nú undir merkjum Borgarverks. Áhersla Ræktunarsambandsins er á jarðboranir. Jarðboranir keyptu allt hlutafé í Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða fyrri part ársins 2015.

Aðalstarfsstöð félagsins er á Selfossi.

Árið 2007 var gerð kvikmynd um sögu félagsins.

Tímalína

Áfangar í sögunni

  1. 1946

    Samvinnufélag stofnað 22. janúar af bændum í fimm hreppum.

  2. 2007

    Kvikmynd gerð um sögu félagsins.

  3. 2014

    Allsherjar endurskipulagningu lauk; jarðvinnudeildin seld frá.

  4. 2015

    Jarðboranir keyptu allt hlutafé fyrri part ársins.

Heimildamynd um sögu Ræktunarsambands Flóa & Skeiða

Myndin var gerð árið 2007 og er í þremur hlutum.

  • Hluti 1

  • Hluti 2

  • Hluti 3

Hafa samband

Segðu okkur frá verkinu og við finnum réttan bor.

Víkurheiði 6, 800 Selfoss

Hringja: 480-8500